hlýtur að vera ég..... hef sett upp þennan fína vef til að kynna smákverin mín tíu en steingleymdi að láta nokkurn mann vita af því. Það er semsagt hægt að skoða allar bækurnar í e-bókarformi á
vefnum og meira að segja kaupa þær. Þetta er eiginlega eini staðurinn sem ég ætla að selja þær.
Kannski má kenna ýmsu veraldarvafstri um. Fermdi minn eldri son að borgarlegum sið á afmælisdaginn minn þann 17. apríl og þurfti að setja í þotugírinn til að hafa þetta af fjárhagslega. Þetta var nú algert ævintýr, svo margir lögðu hönd á plóginn til að gera þetta að ógleymanlegri veislu. Ég ákvað að hafa þetta svona heimaveislu þó að íbúðin sem ég bý í sé ekki ýkja stór. Það þýddi að ég þurfti að endurskipuleggja allt sem inni í henni er. Fékk meira að segja að geyma rúmið mitt í íbúðinni á móti og konan þar svo elskuleg að lána mér sófaborðið sitt og smáborð. Listinn yfir fólk sem hjálpaði mér gæti verið óendanlegur. Það sem mér fannst yndislegast við þetta allt saman var að mér tókst að skapa svona risa fjölskyldu stemmningu og þó að það væri nokkuð þröngt á þingi þá voru allir svo glaðir. Mamma tók upp gítarinn og sungnar voru Neptúnusarvísur hinar nýrri, honum til mikillar armæðu en öðrum til kátínu. Ég hef komist á þá skoðun að ef maður er illa haldin af nostalgíu eins og ég er gagnvart þessari ítölsku fjölskyldustemmningu sem ég upplifði sem barn, þá verð ég bara að reyna að skapa það sjálf.... og það tókst þennan einstaka dag, og aðalatriðið var að fermingarbarnið var í einskærri sæluvímu. Ég ákvað að hafa þetta heima vegna þess að það að vera í sal þýðir að fólk situr við eitt borð og lítill samgangur þar á milli, hér voru allir í návígi. Þó að ég hitti fjölskylduna mína sjaldan þá á ég svo margar minningar og mér þykir svo innilega vænt um þetta fólk. Næst á dagskrá er væntanlega ættarmót.... en þó ekki fyrr en á næsta ári.
Ég hélt reyndar tvær veislur fyrir konung hafsins, eina fjölskylduveislu og eina vinaveislu. Vinaveislan var mun smærri í sniðum, en líka skemmtileg. Hér er lítill listi yfir alla sem hjálpuðu mér að gera þetta mögulegt. Ég á ekki nógu stór orð til að tjá þakklæti mitt..... Þessar manneskjur hafa markað einn skemmtilegasta dag lífs míns og Neptúnusar.
Amma, mamma og Peter, Oddi og Linda, Lilla, Gréta frænka, Valdi, Lilja, Binna og Stefán, Svava og Fred..... algerir englar....