mánudagur, apríl 11, 2005

Gúrkutíð

fann þessa frétt á mbl, setti reyndar brennivín í stað hass, reyni stundum að ímynda mér ef hass væri löglegt og brennivín bannað... þá væri semsagt fréttin svona.... og taktu þetta svo alvarlega..... vegna þess að bæði er jú eiturlyf bara mislöglegt....

"8 ára drengur fann brennivínsflösku

Átta ára drengur, sem var við leik á Íshússtíg í Reykjanesbæ í gær, fann þar flösku og kom með heim til sín. Fram kemur á fréttavef Víkurfrétta, að foreldrum drengsins fannst flaskan grunsamleg og gerðu þeir lögreglu viðvart. Reyndist flaskan vera rúmlega fjögurra lítra brennivínsflaska vafin í pappírspoka.

Foreldrar drengsins, sem vildu ekki láta nafns síns getið, sögðu í samtali við Víkurfréttir að drenginum hefði skiljanlega brugðið er í ljós kom að um eiturlyf var að ræða."

stolið og stílfært frá frétt vefi á mbl klukkan 23:08, tja ef frétt væri um að ræða
og fyrsta innlenda fréttin var "Dorrit liðtæk í Legó" vá er gúrkutíð eða hvað, eða eru fréttirnar alltaf svona gersamlega innantómar.....?? sennilega... önnur fyrisögn af frétt af téðri vefsíðu "Lögreglan handsamar mann með tvær ferðatöskur við bandaríska þinghúsið".... þar eru þeir nú bara að stæla okkar löggur sem handtaka grunsamlega menn með húfur við alþingishúsið okkar.......... við lifum svo sannarlega í heimi martraða þess innihaldslausa ótta

Tíu bækur útgefnar

Ég er á einhvern hátt ekkert sérstaklega módiveruð að skrifa inn á þetta blog, ég hef alltaf haldið dagbók með mínum innstu og kannski einlægustu hugrenningum, ég myndi aldrei setja sumt það sem ég skrifa þar hér fyrir allra augum. Ég skil eiginlega ekki af hverju fólk líkir dagbókum og bloggi saman. Myndi aldrei verða það sama, ekkert frekar en e-bækur og bækur sem enda í prentun. Ég get gert e-bók á fimm mínútum, á einhvern hátt vandar fólk sig ekki eins mikið fyrir hina rafrænu miðla. En nóg af tuði, það eru önnur skáld sem gera það miklu betur en ég.

Ég semsagt hef gefið út þessar 10 þema bækur á íslensku. Hægt að finna þær hér. Ég er eiginlega mjög ánægð með þær, enda hef ég lagt alveg ótrúlega mikla vinnu í þær, þetta eru ekki neitt venjulegar ljóðabækur, miklu frekar ljóðmyndabækur eða svona smá hug-mynda-heimur sem maður getur dottið inn í. Annars þá hef ég aldrei skilið af hverju við hér á eyjunni bláu höfum aldrei farið út í það að gefa út smákver, mér finnst þetta mjög heillandi útgáfuform og öll merkilegustu skáld heimsins fengið sínar fyrstu bækur gefnar út sem smákver. Hér þarf það alltaf að vera heil bók með allt of mörgum ljóðum og allt of dýrar. Gaman ef að við myndum nú fara að gera eitthvað öðruvísi hér.

Ég verð að viðurkenna að, að mér sækir menningarleg innilokunarkennd. Það er einhvern veginn aldrei neitt sem kemur mér á óvart hérna.... nema kannski sú staðreynd að flest skáld og listamenn virðast aldrei fá nóg af sínu eigin naflakuski....
eXTReMe Tracker

Powered by Blogger