Ég elska vatnið hér á Íslandi. Ég elska að geta farið í sund hvenær sem er, hvort heldur það sé stormur eða hríð, sól eða rigning, ég get alltaf farið í sund. Ég held að við þjáumst minna en aðrar þjóðir á þessari breiddargráðu vegna birtuleysis vegna þessa dásamlega næstum því ókeypis forða af vatni. Vegna þess að þegar maður er kominn í heitt vatnið undir berum himni þá verður maður ósjálfrátt kátur, glaður, meir inni í sér. Það er alger munaður að geta notað svona mikið vatn eins og við gerum. Ég get farið í bað á hverjum degi, funheitt svo mig svimar og það kostar ekkert. Ég elska vatnið hér, lyktina og litbrigðin.
Þegar ég syndi er ég marglitta.... eða sviffiskur
annars þá væri gaman að kunna flugsund, ég þori eiginlega ekki að athuga hvort ég kunni það ennþá frá barnæsku, held að ég myndi frekar líta út sem brotlendingarvél en flugvél......