Tíu bækur útgefnar
Ég er á einhvern hátt ekkert sérstaklega módiveruð að skrifa inn á þetta blog, ég hef alltaf haldið dagbók með mínum innstu og kannski einlægustu hugrenningum, ég myndi aldrei setja sumt það sem ég skrifa þar hér fyrir allra augum. Ég skil eiginlega ekki af hverju fólk líkir dagbókum og bloggi saman. Myndi aldrei verða það sama, ekkert frekar en e-bækur og bækur sem enda í prentun. Ég get gert e-bók á fimm mínútum, á einhvern hátt vandar fólk sig ekki eins mikið fyrir hina rafrænu miðla. En nóg af tuði, það eru önnur skáld sem gera það miklu betur en ég.Ég semsagt hef gefið út þessar 10 þema bækur á íslensku. Hægt að finna þær hér. Ég er eiginlega mjög ánægð með þær, enda hef ég lagt alveg ótrúlega mikla vinnu í þær, þetta eru ekki neitt venjulegar ljóðabækur, miklu frekar ljóðmyndabækur eða svona smá hug-mynda-heimur sem maður getur dottið inn í. Annars þá hef ég aldrei skilið af hverju við hér á eyjunni bláu höfum aldrei farið út í það að gefa út smákver, mér finnst þetta mjög heillandi útgáfuform og öll merkilegustu skáld heimsins fengið sínar fyrstu bækur gefnar út sem smákver. Hér þarf það alltaf að vera heil bók með allt of mörgum ljóðum og allt of dýrar. Gaman ef að við myndum nú fara að gera eitthvað öðruvísi hér.
Ég verð að viðurkenna að, að mér sækir menningarleg innilokunarkennd. Það er einhvern veginn aldrei neitt sem kemur mér á óvart hérna.... nema kannski sú staðreynd að flest skáld og listamenn virðast aldrei fá nóg af sínu eigin naflakuski....


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home