fimmtudagur, febrúar 17, 2005

Seríal flensa á klakanum

Heimilið mitt hefur verið flensubælið mikla undanfarinn mánuðinn. Ég hef því verið frekar ósýnileg, líður svolítið eins og ég sé marglytta þessa daganna sem hefur óvart rekið allt of langt upp í fjöruna. Ísland er eini staðurinn í heiminum sem ég verð svona oft veik. Held að ein af ástæðunum fyrir því að þessar flensur leggist svona þungt á landann sé ofneysla fúkkalyfja undanfarin 30 árin. Við hljótum að eiga heimsmet í neyslu á því eins og öllu öðru. Annars þá hef ég ekki setið auðum höndum, vegna þess að ég er klassískur vinnualki og get ekki hætt að vera stöðugt að þó að ég ætti að liggja í bælinu.
Skrifaði eina grein og tók eitt viðtal fyrir Grapevine, fékk það hlutverk þar að vera Art Correspondent, það er bara skemmtilegt, enda hef ég verið mikill aðdáandi þessa blaðs síðan ég sá það fyrst. Hef lesið það af meiri áhuga og áfergju en þessi hefðbundnu dagblöð sem öll eru eins í tón og tali.
Svo hef ég fengið slatta af efni samþykkt hjá Vocies in Wartimes, bæði myndir og ljóð. Ég hef klárað að editera skáldsöguna mína Dagbók Kameljónsins og er nú að leggja hana í hendur útgefenda. Verður spennandi að sjá hvað gerist í því sambandi. Svo er ég núna að klára að setja saman 10 smákver ljóða og listaverka sem litla útgáfan mín Beyond Borders mun gefa út á næstu dögum. Þær munu koma út í afar litlu upplagi hver eða 44, en þetta verða samt 440 bækur allt í allt:)
Meira um það seinna, ég þarf að koma mér að verki.......
eXTReMe Tracker

Powered by Blogger