Fátækt_andleg_líkamleg
Ég er að upplifa alveg frábæra tíma. Svo margt skemmtilegt sem hefur ratað mína leið. Ég er hrikalegur vinnualki. Eins og tildæmis núna, þá er ég með hræðilega flensu og sit hér í ægilegu svitakasti um klukkan 11 að kvöldi, er að spá í hvort að ég ætti ekki bara að vinna í alla nótt að hinum ýmsu verkefnum sem eru komin langt fram yfir deadline vegna þessarar andskotans flensu.
Ég er frekar fátæk þegar það kemur að peningahliðinni ef að ég miða mig við neysluglaða íslendinga. Ég er samt afar sátt við að vaða ekki í peningum, ég er nefnilega rosalega þakklát fyrir það að geta verið hjá strákunum mínum þegar þeir eru veikir. Ég er rosalega þakklát fyrir að fá að sinna sköpunargyðjunni. Og þó að það hljómi klisjulega þá er það þannig að mér finnst ég ógeðslega rík. Mér finnst ég eiga allt sem ég virkilega þarf. Heilsu, dásamleg börn, frábæra tölvu, góða vini og fjölskyldu sem elskar mig.
Stundum þá fórnum við svo skringilegum hlutum fyrir að eiga eitthvað sem við þurfum eiginlega ekkert.
Fólkið, sköpunin og tíminn okkar er eitthvað sem er mun dýrmætara en hlutir...... ég vel það.
Og er því bara í sjálfgefnu hamingjukasti.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home