fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Death in Gaza

Ég hef núna horft á tvær myndir sem báðar hafa verið mjög erfiðar að horfa á. Lilja 4 ever og Death in Gaza. Þær eru báðar sérstæðar fyrir þær sakar að þær fjalla um veruleika barna sem er svo hrottalegur og ómanneskjulegur að það er erfitt fyrir okkur sem sitjum hér í öryggi á eyjunni bláu að horfast í augu við þennan verukeika. Það er mjög jákvætt að þessar myndir eru sýndar yfir höfuð og má RÚV eiga þakkir fyrir það. Það mætti alveg kvarta yfir sýningartíma en þetta er allavega fyrsta skrefið. Ég er svona manneskja að ég er alveg ónýt eftir að horfa á svona myndir. Ég píni mig samt því að það er nauðsynlegt að vita hvað er að gerast í heiminum okkar og svo næsta skref er að bregðast við því. Mér finnst að við Íslendingar ættum að sniðganga vörur frá Ísrael. Það sem er að gerast þarna er svo hræðilegt að við bara megum ekki horfa undan því. Af hverju getum við ekki haft manndóm í að fordæma þetta ástand og þessi brot á saklausum borgurum í Palestínu. Æ hvað ég vildi að ég gæti gert eitthvað. Mér finnst börnin þarna allt eins gætuð verið mín börn.

Ég ætla að skrifa um Lilju 4 ever fljótlega. Ég var alveg brjáluð eftir að hafa horft á þá mynd. Langaði helst að fara út leiðangur með kandísklippur og hreinsa undan öllum þeim barnaníðingum sem yrðu á vegi mínum.



eXTReMe Tracker

Powered by Blogger