Það er svo frábært að vera nútímakona
Það eru komin í mig ákveðin einkenni femínistaþreytu. Hvað væri að því ef að ég vildi vera heima (ekki bara heim) heldur heima með börnunum mínum. Sinna heimilinu á sama hátt og formæður mínar. Hvað í fjandanum væri að því. Í okkar nútímalega þjóðfélagi er rangt að hugsa þannig.
Ég er greinilega metnaðarlaus kona ef að ég hugsa svona. Börnin mín myndu verða að hálfvitum, allavega seinþroska ef þau fengju ekki að fara á leiksskóla áður en þau læra að ganga. Ég hef svo sem engan valkost, það er ekki séns að vera heima með börnin sín þó að maður vildi. Hvernig ætti ég þá að hafa efni á öllum lífsgæðunum sem ég og börnin verðum að fá. Ég verð að vera í mörgum vinnum og ég verð að treysta öðru fólki fyrir börnunum. Til hvers er maður að eignast börn?? Ég veit ekki, til að koma genunum áfram? Kannski ættum við bara að taka þetta alla leið. Framleiðum genabestu börnin og hættum þessu hálfkáki. Við erum svo gáfuð og smart og með flotta líkamsræktaða líkama að það væri synd að skemma þá með sliti og þvagleka. Ef að maður neyðist til að vera heima metnaðarlaus, kúguð og kjarklaus þá eru enginn börn heima, bara þitt eigrandi um í einskismannslandi. Öll hin á stofnunum. Meira að segja gamla fólkið er á stofnunum og það er of metnaðarfullt til að leyfa manni að sinna sér heima hjá manni. Ég gæti aldrei fengið ömmu til að búa hjá mér, hún er of mikið fyrir að vera ein á elliheimilinu. Hún gæti líka þvæst fyrir mér svona líka upptekinni. Ég verð svo að vera í mörgum vinnum svo ég geti arkað um stórmiðstöðvar í eilífu sólskini með krakkana á eftir mér í þreytukasti, hent þeim í verslunarpössun svo ég fái nú frið til að verðlauna mig fyrir dugnaðinn. Ef ég væri hamingjusamlega gift þá yrðum við bæði að vinna margar vinnur vegna þess að merkilegt nokk eftir að konur fóru almennt á vinnumarkað hafa meira og minna allar atvinnugreinar orðið láglauna vinnur. Já ég skil ekki af hverju ég er svona langþreytt og pirruð og hafi enga umfram orku til að sinna unglingum og kannski er hann bara kominn í þunglyndisrugl og gleypir allar gleðipillurnar mínar án þess að ég taki eftir því vegna þess að ég er hamingjusamasta kona í heimi með fullan skáp af hjálpartækjum ástarlífsins.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home